Bílastuð – hleðslukerfi í fjöleignarhúsum
Bílastuð er tvískipt þjónustuleið Eignaumsjónar fyrir rafbílahleðslu með hagsmuni húsfélaga að leiðarljósi. Þjónustan uppfyllir lagalegar skyldur húsfélaga um úttekt á framtíðarþörf fyrir hleðslubúnað rafbíla og tryggir skiptingu kostnaðar milli húsfélaga og notenda. Hleðslukerfi rafbíla er eitt af grunnkerfum hússins og eykur virði fasteigna og sölulíkur.
Hlutlaus úttekt, framkvæmdaáætlun og útvegun tilboða
Eignaumsjón gerir úttekt á hleðsluaðstöðu húsfélags sem tryggir hagkvæma framtíðarlausn og uppfyllir kröfur um framkvæmdaáætlun. Eignaumsjón kannar einnig verð hjá seljendum rafhleðslukerfa, gerir verðsamanburð og skilar stjórn minnisblaði með mati og ráðleggingum sérfræðings. Félagið annast einnig umsóknir ef rafhleðslukerfi eru styrkhæf.
- Heimsókn sérfræðinga, skoðun og samtal við tengilið, mat á heimtaug og tillaga að hentugri hleðslulausn
- Forhönnun á völdu kerfi með drögum að magnskrá og mati á tæknilegri getu kerfis og virkni til framtíðar
- Drög að kostnaðaráætlun með forgangsröðun áfanga og tillögu um greiðslufyrirkomulag og rekstur
Sérhæfð innheimta vegna rafbílahleðslu húsfélaga
Greiðslumiðlun Eignaumsjónar sér um innheimtu gjalda vegna hleðslu rafbíla og færir þar með daglega ábyrgð húsfélags yfir í sjálfvirkt fyrirkomulag og reikningagerð. Þjónustan getur einnig nýst félögum sem ekki eru í húsfélagsþjónustu hjá Eignaumsjón.
Eignaumsjón getur haft heildarumsjón með rekstri og viðhaldi rafhleðslukerfa húsfélaga ef þau eru að fullu snjallvædd og uppfylla staðla.
Heildarumsjón felur m.a. í sér:
- Eignaumsjón uppfærir notendaskrá og notkun, sem er forsenda réttrar innheimtu.
- Öll gögn birt í húsbók á eignaumsjon.is
- Þjónustuvakt er vegna bilana og þjónustubeiðna, reglulegt mat fer fram á afköstum og gæðum kerfis
- Reglubundið mat er gert á afköstum og gæðum kerfisins.
- Orkuverð hjá smásölum vaktað og borið saman við opinberar upplýsingar: aurbjorg.is
Bílastuð Eignaumsjónar
“Þægilegt í alla staði,” segir Jón Ragnars, formaður húsfélagsins í Laufvangi 2-10 í Hafnarfirði um rafhleðslukerfið sem félagið naut aðstoðar Eignaumsjónar við að setja upp, í kjölfar úttektar á hvaða kostir hentuðu félaginu best.
Smellið á graf til að stækka.
Rafbílaspá Eignaumsjónar
Svartar súlur sýna fjölda fólksbíla á Íslandi sem knúnir eru jarðefnaeldsneyti.
Gular súlur sýna fjölda bíla í rafhleðslu.
Gula línan sýnir hlutfall raf- og tengiltvinnbíla af nýjum bílum eftir árum.
Fjólubláa línan sýnir hlutfall raf- og tengiltvinnbíla.