Húsbók – mínar síður eigenda
Húsbókin er rafræn þjónustu- og upplýsingaveita á eignaumsjon.is fyrir eigendur í hús- og rekstrarfélögum í þjónustu Eignaumsjónar. Allir þurfa að samþykkja skilmála húsbókarinnar með netfangi sínu þegar farið er inn í húsbókina í fyrsta sinn.
Í húsbókinni er leitast við að safna saman og gera aðgengileg öll helstu gögn viðkomandi húsfélags. Til dæmis má benda á að í aðdraganda hús- og aðalfunda eru fundargögn aðgengileg til upplýsingar og skoðunar fyrir fund.
Hvaða gögn er hægt að skoða?
Eigendur sjá m.a.:
» Húsgjöldin sín (greiðsluseðla/kröfusögu)
» Fundargerðir
» Ársreikninga
» Kostnaðaráætlanir» Tryggingarskírteini
» Ýmis gögn sem snúa að viðhaldi og framkvæmdum húsfélagsins
Stjórnarmenn sjá m.a.:
» Daglega fjárhagsstöðu húsfélags
» Stöðu bankareikninga
» Útistandandi húsgjöld/framkvæmdagjöld
» Stöðu innheimtukrafna allra greiðenda
» Eftirlitsskýrslur húsumsjónar, ef við á
» Önnur gögn sem snúa að stjórn húsfélagsins
Þjónustubeiðnir
Hægt er að senda ýmsar þjónustubeiðnir rafrænt í gegnum húsbókina. Þar má t.d. nefna nafnabreytingar og eigendaskipti, breytingar á heimilisfangi, yfirlýsingu húsfélags, beiðnir vegna útlagðs kostnaðar o. fl.
Innskráning í húsbókina er aðgangsstýrð, til að tryggja að einungis þeir sem eiga rétt á að skoða umrædd gögn hafi aðgang að þeim. Notandi er skráður með kennitölu greiðanda og/eða eiganda og fer innskráning fram í gegnum island.is, með rafrænum skilríkjum í snjallsíma eða íslykli. Íslykill er gefinn út af Þjóðskrá Íslands, sjá nánari upplýsingar á island.is.
Aðgengilegar upplýsingar auka gagnsæi og virði eigna
Eignaumsjón lítur á Húsbókina sem mikilvægt skref í átt að því að veita eigendum fasteigna ítarlegar og gagnlegar upplýsingar og mun leitast við að efla hana enn frekar í framtíðinni. Það er okkar mat að aðgengilegar upplýsingar auka virði eigna og þess njóta þær eignir sem tengjast hús- og rekstrarfélögum í þjónustu Eignaumsjónar.