Eignaumsjón – lykill að betra húsfélagi
Eignaumsjón er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi.
Fyrirtækið Eignaumsjón hf. var stofnað haustið 2000 á grundvelli félagsins HÚSRÁÐ, sem hafði þá starfað í nokkur ár. Eignaumsjón er fyrsta félagið sinnar tegundar á Íslandi og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu í rekstri fjöleignarhúsa, bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis, eftir meira en tveggja áratuga starfsemi.
Eignaumsjón er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla.
Eignaumsjón er með starfsábyrgðartryggingu hjá viðurkenndu tryggingarfélagi vegna bótaskyldu sem gæti fallið á félagið. Fjárhagsleg staða félagsins er góð. Um 25% vöxtur hefur verið í starfseminni undanfarin ár og eigi fé er jákvætt.
Yfir 20 ára þekking og reynsla
» Eignaumsjón er brautryðjandi í rekstrarumsjón og þjónustu við fasteignir á Íslandi
» Við sjáum um rekstur mörg hundruð hús- og rekstrarfélaga
» Með sérþjálfuðu starfsfólki og verkferlum gerum við reksturinn markvissari og hagkvæmari
» Við leysum málin, einföldum störf hússtjórna og spörum tíma
Gildi og þjónustumarkmið
Gildin okkar:
» Gott viðmót
» Þekking
» Skilvirkni
» Hlutleysi
Markmið okkar:
» Að veita viðskiptavinum, bæði hússtjórnum og eigendum, framúrskarandi þjónustu, svör og upplýsingar