Atvinnuhúsnæði – sérsniðnar lausnir
Eignaumsjón býður upp á heildarlausnir í rekstri atvinnuhúsnæðis. Með hlutlausum og faglegum vinnubrögðum og aðgengilegum upplýsingum í húsbók á eignaumsjon.is gerum við rekstur atvinnuhúsnæðisins markvissari og ódýrari, auðveldum störf stjórnar, samskipti eigenda og/eða leigjenda, aukum samheldni, leysum ágreiningsmál og spörum tíma.
Þjónustuleið A1 – fjármál og fundir
Fjármál og bókhald
» Innheimta húsgjalda og annarra gjalda og VSK endurgreiðslur
» Greiðsla reikninga og annarra útgjalda sem stjórn hefur samþykkt
» Færsla bókhalds, afstemmingar, milliuppgjör og gerð ársreiknings
» Ávöxtun framkvæmdasjóðs og annarra peningalegra eigna rekstrarfélagsins
Aðalfundir
» Undirbúningur, fundarboð, fundarstjórn, frágangur og fundargerðir
Húsfélagsyfirlýsingar
Samskipti við stjórn og félagsmenn
Samskipti við opinbera aðila
Þjónustuleið A2 – fjármál, fundir og framkvæmdastjórn
Fjármál og fundir
Framkvæmdastjórn – sérsniðin lausn fyrir hvert rekstrarfélag
» Framkvæmdastjórn rekstrarfélagsins samkvæmt nánari skilgreiningu
» Daglegur rekstur samkvæmt skilgreiningu í samningi
Húsbókin ykkar
Húsbókin er mínar síður eigenda. Þar geta stjórnir og eigendur skoðað rauntímaupplýsingar um sitt félag og sína eign, sent inn rafrænar þjónustubeiðnir og nýtt afslætti sem þar eru í boði.
Umboð eigenda
Eigendur fasteigna, sem hafa ekki tök á að mæta á hús- eða aðalfundi í sínu húsfélagi, geta nálgast umboð hér til að fylla út fyrir umboðsmann sem á að mæta fyrir þeirra hönd.
Spurt og svarað
Hér eru svör við algengum spurningum um þjónustu okkar. Svo má alltaf senda póst á þjónustuverið okkar, spjalla á netinu eða hringja í síma 585-4800.